The Fanpage of the Icelandic band Hellvar by Wim Van Hooste
Sunday, July 11, 2010
Friday, July 09, 2010
Sunday, July 04, 2010
About Unun
Meðlimir
Gunnar Lárus Hjálmarsson – Bassi, gítar og söngur
Ragnheiður Eiríksdóttir – Gítar og söngur
Þór Eldon (1993-1998) – Gítar
_________________________________________________
Ólafur Björn Ólafsson (1994-1995) – Trommur
Matthías Hemstock (1995-1998) – Trommur
Þorvaldur Gröndal (1998-1999) – Trommur
Jóhann Jóhannsson (1994-1995) – Hljómborð
Valgeir Sigurðsson (1995-1998) – Hljómborð
Viðar Hákon Gíslason (1998-1999) – Bassi
Source: Unun
Friday, June 25, 2010
Me and My Brain (2007)
A song written by Dr. Gunni for Eurovision 2007
Unfortunately it didn't win.
"Ég og Heilinn Minn" by Heiða (Ragnheiður Eiríksdóttir)
www.youtube.com/v/5kAdC0zjLMA&hl&fmt=18

Tuesday, June 15, 2010
New Ruddinn Album this Autumn
Bedroom artist (never played live yet) Bertel, better known as Ruddinn, is finishing his 3rd Album @ his home studio.
"Not the end of the Road", a song by Ruddinn, vocals by Heiða of Unun & Hellvar, and the Brit Jed Stephens plays bass. Album is probably called "I need a vacation". Heiða sings on 5 songs (e.g. "Too distant for us", "Cover the distance"). Soul Viper on the track "Supersonic Situation".
Source: Dr. Gunni
Monday, May 24, 2010
Stop that noise!
Stop that noise!
www.youtube.com/v/3hEaq5xWOb0&hl&fmt=18
Alexandra in Morgunblaðið (2006)
"Ég gef allan minn tíma í þetta"
Leikhópurinn tók viðtöl við fólk og samdi upp úr því leikrit

Written by Helgi Bjarnason
"Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri. Ég stefni að því að gera þetta í lífinu," segir Alexandra Ósk Sigurðardóttir, formaður Vox Arena, leiklistarfélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík. Vox Arena og Leikfélag Keflavíkur hafa samvinnu um uppsetningu á gamanleik um lífið í Keflavík sem leikhópurinn samdi sjálfur. Verkið verður frumsýnt í kvöld.
Leikritið heitir "Keflavík, Ísland, alheimurinn eða mamma þín" og er leikstýrt af Sigurði Eyberg. "Við byrjuðum á þessu með tvær hendur tómar," segir Alexandra. Þátttakendurnir tóku viðtöl við fólk á Suðurnesjum og annars staðar frá, meðal annars um það hvað því fyndist um Keflavík, og sauð kjarnann úr leikritinu upp úr þeim. Unnið var upp úr þessum upplýsingum af hæfilegu kæruleysi og staðreyndum snúið á hvolf, ef svo bar undir. "Leikritið byggist upp á stuttum atriðum. Það er mikill húmor í þessu, kannski svolítið súr á köflum," segir Alexandra. Hún segir að allir Suðurnesjamenn ættu að skilja skopið en var ekki viss um aðra. Titill verksins er þessu marki brenndur og vísar að hluta til orðatiltækis sem hún segir algengt að menn noti í Keflavík þegar þeir þrátta.
"Ég held að vel hafi tekist til með þetta. Það er viss hætta á að svona vinna fari út í algert rugl en ég vona að þetta sé vel skiljanlegt hjá okkur," segir Alexandra.
Mikil vinna
Alexandra hefur mikinn áhuga á leiklist og er á kafi í henni. "Ég fékk þessa bakteríu þegar ég var lítil. Ég og vinkona mín vorum alltaf að semja asnaleg leikrit. Seinna frétti ég af því að það væri leikfélag hér í Keflavík og gaf mig fram. Ég hef verið á kafi í þessu síðan." Hún hefur tekið þátt í verkefnum Leikfélags Keflavíkur frá árinu 2002 og er varaformaður félagsins. Þá er hún formaður Vox Arena í Fjölbrautaskólanum. Það er ekki nóg með að hún leiki í verkinu og sé eins og útspýtt hundskinn í undirbúningi heldur tók hún einnig þátt í því að semja tónlist fyrir sýninguna og leikur á bassa í henni.
"Þetta er rosaleg vinna. Ég held að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir því hvað við þurfum að hafa mikið fyrir þessu. Ég gef allan minn tíma í þetta," segir Alexandra og viðurkennir að það bitni á náminu. Hún lætur jafnframt þá skoðun í ljós að svona starf mætti meta til eininga í náminu, eins og tónlist.
Source: Morgunblaðið

Subscribe to:
Posts (Atom)