Trúbatrixur í Bítlabænum
Trúbatrixurnar eru mættar til leiks aftur eftir að hafa slegið í gegn með tónleikaröð sinni á Café Rósenberg fyrr í vetur. Nú er ferðinni heitið til Keflavíkur, vöggu rokksins á Íslandi, þar sem „Trixurnar“ koma fram í kvöld á Paddys Irish pub. Þar koma saman bæði þekktar söngkonur frá Suðurnesjum eins og Elíza Geirsdóttir Newman og Heiða Eiríksdóttir, ásamt upprennandi tónlistarkonum eins og Aðalheiði/Girl in a dark room, Nönnu og Frumpets. Munu þær allar flytja frumsamið efni. Dagskráin hefst klukkan 20 og er frír aðgangur.
No comments:
Post a Comment