Hellvar leikur á Græna hattinum
Hljómsveitin Hellvar mun leggja land undir fót um helgina og leika á Græna hattinum á Akureyri. Á dagskrá verða lög af frumrauninni Bat Out of Hellvar sem kom út fyrir skemmstu í bland við annað efni. „Já, við erum spennt fyrir ferðinni enda er þetta í fyrsta skipti sem við spilum á Akureyri,“ segir Heiða söngkona Hellvars.
„Tónlistarlífið er líka í blóma á Akureyri og Græni hatturinn skemmtilegur staður að spila á,“ bætir hún við. „Við erum líka nýbúin að halda útgáfutónleika sem heppnuðust alveg glimrandi vel.“ Umræddir útgáfutónleikar Hellvars vöktu athygli í síðustu viku en þeir fóru fram í strætisvagni sem ferðaðist frá Hlemmi og endaði á Lækjartorgi með smá krókaleið. Heiða segir að myndast hafi góð stemning í þessum óvenjulegu aðstæðum og hún lofar jafn góðri stemningu á tónleikunum á Akureyri.
Hellvar er upphaflega samstarfsverkefni Elvars Geirs Sævarssonar og Heiðu Eiríksdóttur og hljómsveitin var stofnuð í Berlín þar sem þau bjuggu. Í ár bættust svo við gítar- og hljómborðsstúlkan Alexandra Ósk Sigurðardóttir og bassaleikarinn Sverrir Ásmundsson. Á laugardag mun hljómsveitin árita nýja diskinn í Eymundsson Hafnarstræti og á Glerártorgi.
Source: Dagur
The Fanpage of the Icelandic band Hellvar by Wim Van Hooste
Showing posts with label Hellvar Akureyri live Eymundsson Graena Græna hattinum Kimi records Heida Eiriks Elvar Geir Saevarsson Alexandra Osk Sigurdardottir Sverrir Asmundsson. Show all posts
Showing posts with label Hellvar Akureyri live Eymundsson Graena Græna hattinum Kimi records Heida Eiriks Elvar Geir Saevarsson Alexandra Osk Sigurdardottir Sverrir Asmundsson. Show all posts
Subscribe to:
Posts (Atom)